Fréttir

Góðir sigrar Vestra um helgina

Blak | 19.02.2017

Karlalið Vestra í blaki fékk Aftureldingu B í heimsókn um helgina og voru spilaðir tveir leikir. Fyrri leikurinn fór fram á föstudagskvöld kl. 20:40 strax á eftir körfuknattleiksleik sem var fyrr um kvöldið. Það var því sannkölluð Vestraveisla í Torfnesi á föstudagskvöldinu. Seinni leikurinn var spilaður kl. 10:30 á laugardagsmorgni. 

Vestri vann sannfærandi sigur í báðum leikjum 3-0. Afturelding átti þó góða spretti og sumar hrinurnar voru nokkuð jafnar og spennandi.  Vestri heldur þar með sæti sínu á toppi deildarinnar, en framundan er spennandi toppbarátta í deildinni.

Næstu leikir karla- og kvennaliða Vestra eru um næstu helgi, en þá verður stór blakhelgi í Torfnesi. Á laugardeginum tekur kvennaliðið á móti Aftureldingu B og karlaliðið á móti HK B. Á sunnudeginum spila bæði lið við HK B.

 

Deila