Fréttir

Vestri tekur á móti Fjölni

Körfubolti | 02.02.2017
Meistaraflokkur Vestra 2016-2017 ásamt Yngva Gunnlaugssyni þjálfara. Ljósmynd: Ágúst Atlason.
Meistaraflokkur Vestra 2016-2017 ásamt Yngva Gunnlaugssyni þjálfara. Ljósmynd: Ágúst Atlason.

Baráttan hjá meistaraflokki karla í körfubolta, um sæti í úrslitakeppnini 1. deildar, heldur áfram. Föstudaginn 3. febrúar mæta Fjölnismenn í heimsókn á Jakann. Leikurinn hefst sem fyrr kl. 19:15. Í hálfleik verður skrifað undir samstarfssmaning við Hertz bílaleigu og skotleikur Hertz kynntur til sögunnar þar sem veglegur vinningur er í boði. Skömmu fyrir leik verður kveikt upp í grillinu og ljúffegir Vestraborgarar steiktir.

Fjölnismenn sitja sem stendur í öðru sæti deildarinnar og því má búast við erfiðum leik. Vestramenn eru þó hvergi bangnir og ljóst er að til mikils er að vinna því sigur á einu af toppliðum deildarinnar væri gott veganesti inn í baráttuna um sæti í úrslitakeppninni.

Hvetjum alla til að mæta á Jakann á föstudag og styðja við bakið á strákunum. Þeir fá svo stutta hvíld því strax á sunnudaginn mæta þeir FSu á útivelli. Sá leikur er gríðarlega mikilvægur því Selfossliðið er jafnt Vestra að stigum í deildinni.

Áfram Vestri!

Deila