Alejandro Raposo
Bakvörður | Spánn | Fæddur: 17. apríl 1998
Alejandro er spænskur bakvörður sem getur leyst stöður leikstjórnanda og skotbakvarðar. Seinni hluta síðasta tímabils lék hann með Breiðabliki og átti þátt í því að tryggja liðinu deildarmeistaratitil 1. deildar og sæti í úrvalsdeild.
Í sumar var hann valinn í spænska U-23 landsliðið í 3 á 3 körfubolta, en einnig hefur hann verið valinn í U14, U15 og U16 landslið Spánar. Með Blikum skilaði hann 14 stigum, 4,2 fráköstum og 3 stoðsendingum að meðaltali í leik. Áður hefur hann leikið í LEB Plata og EBA deildunum á Spáni.