Viðburðir

1. deild karla: Vestri - Snæfell

Körfubolti | Jakinn | 06.10.2017 | 19:15 til 20:45
Yngvi Páll Gunnlaugsson og lærisveinar hans verða í eldlínunni föstudaginn 6. október þegar liðið tekur á móti Snæfelli.
Yngvi Páll Gunnlaugsson og lærisveinar hans verða í eldlínunni föstudaginn 6. október þegar liðið tekur á móti Snæfelli.

Þá er loksins komið að því! Íslandsmótið í körfuknattleik er um það bil að hefjast. Vestri tekur á móti Snæfelli í fyrstu umferð hér heima á Jakanum föstudaginn 6. október kl. 19:15. Frítt verður inn á leikinn og hvetjum við Ísfirðinga og nærsveitarmenn til að fjölmenna og leggja sitt á vogarskálarnar þannig að strákarnir fái fljúgandi start inn í tímabilið.

Árskort á alla heimaleiki liðsins á Íslandsmótinu verða til sölu á leiknum og vonumst við til að sem flestir stuðningsmenn tryggi sér kort. Kortunum fylgir einnig kaffi á leikjum. Að vanda verður að sjálfsögðu einnig boðið upp á ljúffenga grillaða hamborgara fyrir leik á litlar 1.000 kr.

Allir á Jakann! Áfram Vestri!