Fréttir

Að komast framhjá andstæðingnum

Knattspyrna | 06.05.2011 Bolvíkingurinn Bjarni Pétur Jónsson er í fjölmiðlafræðinámi á Akureyri. Bjarni er bæði góður penni og fótboltamaður og mun í pistli sínum fræða oss almúgann um undirstöðuatriði í knattspyrnu og jafnframt eitt elsta bragðið í boltanum, hvar Sir Stanley Matthews, Ronaldinho og Andri Rúnar Bjarnason koma við sögu: Að rekja knöttinn. Við gefum Bjarna orðið.


"Við upphaf hvers tímabils er nauðsynlegt að fara vel yfir vopnabúrið. Flestir sóknarmenn hafa yfir að ráða fjölbreyttum hreyfingum til að blekkja varnarmenn. Yfirleitt eru þessar hreyfingar einfaldar. Það er framkvæmd þeirra sem skilur hafrana frá sauðunum. Leikmenn sem búa yfir mjög miklum hraða komast gjarnan upp með slaka framkvæmd. Hraðinn minnkar hins vegar með árunum. Þá sést best hverjir hafa mestu hæfileikana og hverjir framkvæma sínar hreyfingar best. Þetta á við um Ryan Giggs. Þetta átti líka við Stanley Matthews. Hann lék meðal þeirra bestu þar til hann varð fimmtugur. Giggs á því nokkur góð ár eftir.

Matthews var nefndur mörgum nöfnum á sínum tíma, m.a. töframaðurinn og galdragengillinn (the wizard of the dribble). Matthews er auk þess eini knattspyrnumaðurinn sem hefur verið aðlaður á meðan hann var ennþá að spila. Sir Stanley kynnti til sögunnar nýtt vopn. Þetta vopn þykir enn í dag það áhrifamesta til að komast framhjá varnarmönnum. Þeir sem þekkja ekki til þessa bragðs þurfa ekki að örvænta. Ég ætla að útskýra þetta fyrirbæri sem gerði Matthews ódauðlegan.

Þessi hreyfing lætur ekki mikið yfir sér í fyrstu. Lykillinn felst í þungaflutningi. Boltanum er haldið við innanverðan fótinn þegar þungaflutningur hefst. Honum er leikið til vinstri og þunginn fluttur djúpt niður í vinstri fótinn. Þegar andstæðingurinn er kominn úr jafnvægi er honum leikið með snöggri hreyfingu til baka. Lykillinn er að koma andstæðingnum úr jafnvægi með færslu efri hluta líkamans til þeirrar hliðar sem boltanum er leikið fyrst. Í nútímaknattspyrnu er hún yfirleitt notuð til að komast í skotstöðu. Arjen Robben er öflugur sendiherra Matthews bragðsins. Varnarmenn vita sem er að Robben ætlar að skjóta á markið með vinstri fæti. Það er bara ekki nóg að vita af því.

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Ronaldinho kom með margar nýjungar enda nýjungagjarn maður. Hvort sem það tengdist útliti eða knattspyrnu. Hann nýtti sér þá tækni sem Matthews hafði kynnt til sögunnar og fullkomnaði nýtt bragð á gömlum grunni. Hann fékk mikið að láni frá Matthews. Sir Stanley hefði þó líklega verið í vandræðum með að fylgja eftir hreyfingum Ronaldinho. Boltanum er leikið með utanverðum fæti til hliðar, þunginn færður í sömu átt en einungis efri hluti líkamans. Nokkra leikni þarf til að ljúka bragðinu. Boltinn fer í raun aldrei af ristinni. Honum er leikið örlítið til hliðar með utanverðri ristinni og tilbaka aftur í sömu hreyfingu. Áhugasömum er bent á antílópu BÍ/Bolungarvíkur, Andra Rúnar Bjarnason til frekari glöggvunar á framkvæmdinni.
Að lokum legg ég til að þeir leikmenn BÍ/Bolungarvíkur sem skori eftir að hafa framkvæmd Matthews finntuna frægu verði aðlaðir."


Deila