Á aðalfundi hjólreiðadeildar Vestra, þann 7. mars síðastliðinn, var ný stjórn kosin til starfa.
NánarHjólagarður Vestra vígður sl helgi að viðstöddu miklu fjölmenni. Í hjólagarðinum er ný hólabraut eða pumpubraut. Það tók um 2-3 vikur að leggja brautina og var það gert í sjálfboðaliðavinnu undir stjórn Ólivers Hilmarssonar. Hjólreiðadeild Vestra lögðu ófáir verkinu lið með því að leggja til aðstöðu, tæki og mannskap. Foreldrar voru dugleg að mæta og taka þátt í undirbúningnum. Guðmundur Kr. Ásvaldsson var löngum stundum á gröfu sinni við verkið og Ágúst Atlason styrkti framtakið með efniskaupum.
Hólabraut eða pumpubraut er þannig gerð að unnt er að fara brautina með því að nýta sér hólana til þess að ná ferð og komast áfram án þess að stíga hjólið og listin felst í því að ná færni á því sviði.
Það verður gaman að fylgjast með ásókninni í garðinn og sjá hann vaxa í framtíðinni.
NánarHjólreiðadeild Vestra stendur fyrir Enduro fjallahjólamót um helgina á Ísafirði. Mótið snýst aðalega um að eiga góðan dag á fjöllum með skemmtilegu fólki. Dagleiðirnar eru allt að 25 km langar en tímataka er aðeins á hluta brautarinnar.
NánarHjólreiðadeild Vestra vinnur að síðu um fjallahjólaleiðir á Ísafirði. Fjallahjólanetið á svæðinu er alltaf að þéttast og stækka og með síðunni vill hjólreiðadeildin auka aðgengi að upplýsingum um svæðið. Á sama tíma stuðla að því að upplýsingar um þetta magnaða hjólamekka Ísafjörð birtist á leitarsíðum.
Síðan hefur lénið www.mtbisafjordur.is
Hjólreiðadeildin fékk styrk frá Uppbyggingasjóði Vestrfjarða til að koma upp síðunni.
NánarHjólreiðadeild Vestra heldur Enduro Ísafjörð 12 & 13 ágús 2022.
Viðburðurinn verður með festivalsívafi í ár. Sem þýðir að ætlum ekki bara bjóða ferskustu hjólakeppendur landsins velkomna vestur í Enduro gleðina. Heldur alla skemmtilegu vini þeirra líka. Hvort sem þeir hjóla með endurólestinni eða fara sína eigin leiðir (Ekki krafa um að hengja á sig flögu)
Skráning er hafin á veg tímatöku
NánarHjólreiðadeild Vestra heldur ungduro fjallahjólamót þann 18. júní næstkomandi. Ungduro er enduro keppni fyrir alla krakka og unglinga, keppnin hefst kl 15:00 og brautarskoðun er kl 11:00. Þátttökugjaldið er 2.000 kr. Opið er fyrir skráningu til kl. 9 þiðjudaginn 14. júní.
NánarHjólreiðadeild Vestra býður upp á fjallahjólanámskeið fyrir börn frá 8 ára aldri (2014) og upp í unglinga og ungmenni. Endanleg hópaskipting ræðst af þátttöku, en gert er ráð fyrir tveimur hópum. Námskeiðið fer fram á Ísafirði dagana 21.-22. maí.
NánarAðalfundur hjólreiðadeildar Vestra 2022 verður haldinn miðvikudaginn 27. apríl. Fundurinn verður haldinn í Slökkvistöð Ísafjarðar (Fjarðarstræti) og hefst kl. 19:30.
NánarEnduro Ísafjörður 2021 var haldið slíðastliðna helgi. Mótið heppnaðist vel, þrátt fyrir smá hnökra í tímatökubúnaðnum. Um 50 þátttakendur tóku þátt í mótinu og keppt var í 8 sérleiðum í sjö flokkum.
Net fjallahjólabrauta hérna fyrir vestan er alltaf að stækka og tókst að bjóða keppendum uppá fjölbreytt leiðarval. Nýbreytni var í ár að hjólaskutlur (leigubílar) ferjuðu keppendur upp á heiði og upp á dal.
Við viljum þakka keppendum kærlega fyrir komuna. Eins viljum við þakka sjálfboðaliðum hjólreiðadeildar Vestra sem og styrkaraðilum. HG, Jakob Valgeir, Dokkan, Ultima thule, Hamraborg og bílstjórunum Sófusi og Guðbrandi fyrir aðstoðina.
Fleiri myndir frá mótinu má finna á fb síðu deildarinnar.
Nánar