Fréttir

Meistaraflokkur kvenna mætir Fjölni B heima

Körfubolti | 17.03.2021
Meistaraflokkur kvenna tekur á móti Fjölni B í 1. deildinni, fimmtudaginn 18. mars, kl. 18:00. Vegna sóttvarna er takmarkaður fjöldi áhorfenda er leyfður. Aðeins 36 miðar eru í boði fyrir fullorðna, ókeypis er fyrir börn, fædd 2005 og síðar, í fylgd með fullorðnum. Börnum verður aðeins hleypt inn í fylgd með fullorðnum.
 
Miðasala er eingöngu rafræn í gegnum smáforritið Stubb.
 
Leikurinn verður einnig sýndur í beinni útsendingu hjá Viðburðastofu Vestfjarða. Hægt er að kaupa styrktarmiða í Stubbi.
 
Gestir eru beðnir um að virða gildandi sóttvarnarreglur:
 
  • Grímuskylda er á leiknum
  • 2 metra nálægðartakmörkun milli ótengdra aðila
  • Gestir skulu ekki fara úr sætum sínum að óþörfu á meðan á leik stendur og í hálfleik
  • Óheimilt er með öllu að fara inn á keppnissvæði
Sjoppan verður opin fyrir leik en lokar 17:55 og verður ekki opin í hálfleik.
 
Hægt er að nálgast Stubb fyrir bæði Android síma og I-phone:

Stubbur fyrir Android

Stubbur fyrir I-phone

Deila