Fréttir

Aðalfundur Blakdeildar Vestra

Blak | 23.03.2026

Aðalfundur Blakdeildar Vestra vegna starfsársins 2025, verður haldinn á kaffistofu Ístækni, Sindragötu 5, þriðjudaginn 31. mars og hefst hann kl. 16:30.

Samkvæmt lögum deildarinnar er dagskrá aðalfundar sem hér segir:

- Fundarsetning.  Kosning fundarstjóra og fundarritara.

- Skýrsla stjórnar og ársreikningar

- Reglugerðabreytingar.  Reikna má með að lögð verði fram tillaga um breytingar á reglugerð.

-Kosningar:

a) Kosinn formaður deildar til eins árs.

b) Kosið í meistaraflokksráð; oddviti til eins árs, einn aðalmaður til tveggja ára og einn varamaður til eins árs.

c) Kosið í yngriflokkaráð; oddviti til eins árs, einn aðalmaður til tveggja ára og einn varamaður til eins árs.

Önnur mál.

Félagar og foreldrar eru hvattir til að fjölmenna.

Deila