Fréttir

Sunddeild Vestra hefur störf á ný

Sund | 09.09.2026

Æfingar byrja mánudaginn 14. september og bjóða upp á æfingar fyrir börn fædd árin 2017 til 2020. Þjálfari hópanna verður Carmela Hernandez Ramos. 

Mánudaga verða æfingar í boði fyrir börn fædd árið 2020 milli klukkan 15:00 og 15:50. Miðvikudaga verða æfingar í boði fyrir börn fædd 2019 milli klukka 15:00 og 15:50. Fimmtudaga verða æfingar í boði fyrir börn fædd árin 2017 og 2018.
Ekki næst að bjóða upp á æfingar fyrir aðra árganga að svo stöddu en við erum bjartsýn á að á næstu árum fáist starfið byggt upp með árangursríkum hætti svo hægt verði að auka framboðið fyrir eldri iðkendur. 

Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við Pál Janus Þórðarson, formann sunddeildar, á netfangið sund@vestri.is eða í síma 866-86609 milli klukkan 11 og 13 á virkum dögum.

 

 

Deila