Fréttir

Auður Líf efnilegasti íþróttamaður Ísafjarðarbæjar

Blak | 22.01.2017
Auður Líf Benediktsdóttir, efnilegasti íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2016
Auður Líf Benediktsdóttir, efnilegasti íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2016

Auður Líf Benediktsdóttir blakari hlaut í dag titilinn efnilegasti íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2016. Hverju íþróttafélagi býðst að tilnefna leikmenn í valinu um íþróttamann ársins og efnilegasta íþróttamanninn. Af hálfu Blakdeildar Vestra var Auður tilnefnd sem efnilegasti íþróttamaðurinn og Tihomir Paunovski var tilnefndur í flokknum íþróttamaður Ísafjarðarbæjar. Kristín Þorsteinssdóttir, sundkona frá íþróttafélaginu Ívari var valin íþróttamaður Ísafjarðarbæjar.

Það er afar ánægjulegt að blakkona hafi orðið fyrir valinu og er það í fyrsta skipti sem blakari hlýtur slíkan titil hjá Ísafjarðarbæ. Þetta sýnir vonandi að tekið sé eftir góðu starfi blakdeildarinnar, en við eigum marga efnilega íþróttamenn, bæði stelpur og stráka. 

Auður er vel að titilinum komin, en hérna er samantekt úr umsögn sem fylgdi hennar tilnefningu:

 

Auður Líf Benediktsdóttir hefur æft og spilað blak frá 7 ára aldri. Hún á fjölmarga Íslandsmeistaratitla í yngri flokkum og er nú lykilleikmaður með meistaraflokki Vestra í blaki. Á árinu 2016 var hún valin í U17 landsliðið í blaki þar sem hún stóð sig sérlega vel. Þar að auki spilaði hún og keppti í strandblaki á Möltu um sumarið með góðum árangri.

Og hér er úrdráttur umsögn sem fylgdi tilnefningu Tihomirs

Tihomir Paunovski flutti frá Makedóníu til Ísafjarðar í janúar 2016 til að þjálfa og spila með blakdeild Vestra. Hann er fyrrum atvinnumaður í blaki og hefur einnig mikla reynslu sem þjálfari. Tihomir er afar góður leikmaður, á getustigi sem sjaldséð er hér á landi. Hann hefur einnig reynst vel sem þjálfari og ungum blökurum í Vestra hefur farið hratt fram undir hans stjórn. Hann á stóran þátt í því að karlalið Vestra situr nú í langefsta sæti 1. deildarinnar í blaki.

 

Hér eru listar yfir tilnefningarnar, en það er ljóst að Ísafjarðarbær á marga góða og efnilega íþróttamenn:

Íþróttafélögin í Ísafjarðarbæ hafa tilnefnt eftirfarandi í valinu um íþróttamann ársins:

Albert Jónsson                     Skíðafélag Ísfirðinga

Anton Helgi Guðjónsson    Golfklúbbur Ísafjarðar

Daniel Osafu-Badu              Knattspyrnudeild Vestra

Haraldur Hannesson           Knattspyrnudeild Harðar

Jens Ingvar Gíslason           Handboltadeild Harðar

Kristín Þorsteinsdóttir        Íþróttafélagið Ívar

Nebojsa Knezevic                Körfuknattleiksdeild Vestra

Tihomir Paunovski               Blakdeild Vestra

Valur Richter                       Skotíþróttafélag Ísafjarðar

 

Í valinu um efnilegasta íþróttamanninn eru eftirtaldir tilnefndir:

Auður Líf Benediktsdóttir    Blakdeild Vestra

Ásgeir Óli Kristjánsson         Golfklúbbur Ísafjarðar

Jón Ómar Gíslason                 Handboltadeild Harðar

Nökkvi Harðarson                  Körfuknattleiksdeild Vestra

Sigurður Hannesson             Skíðafélag Ísfirðinga

Þráinn Ágúst Arnaldsson  Knattspyrnudeild Vestra

 

Deila