Fréttir

Blakfélagið Skellur / Blakdeild Vestra

Blak | 10.01.2016

Ágæti félagsmaður.
Nú er komið að lokakafla í vinnunni við sameiningu íþróttafélaga á Ísafirði.

Þér er hér með boðið á stofnfund íþróttafélagsins Vestra, nýs sameinaðs íþróttafélags á norðanverðum Vestfjörðum. Fundurinn mun fara fram laugardaginn 16. janúar 2016 kl. 16.00 á fjórðu hæð Stjórnsýsluhúss Ísafjarðarbæjar. 
Að baki stofnunar Vestra eru fimm íþróttafélög sem stefna að sameiningu undir merkjum hins nýja félags; Boltafélag Ísafjarðar (BÍ88), Körfuknattleiksfélag Ísafjarðar (KFÍ), Blakfélagið Skellur, Sundfélagið Vestri og knattspyrnudeild UMFB í Bolungarvík.

Dagskrá fundar;

1. Fundarstjóri kjörinn
2. Stofnun félags
3. Samþykktir/lög félags
4. Kosning stjórnar og skoðunarmanna
5. Önnur mál

Að lokinni hefðbundinni dagskrá verður boðið upp á kaffi og léttar veitingar.

Deila