Fréttir

Blakþjálfari óskast

Blak | 14.05.2015

Blakfélagið Skellur á Ísafirði óskar eftir þjálfara fyrir starfsárið 2015-2016.

Félagið heldur úti æfingum hjá meistaraflokki karla og kvenna og einnig í yngri flokkum, 2. til 5. flokki. Þá er félagið þátttakandi í íþróttaskóla HSV og sér um blakþjálfun barna í 3.-4. bekk í lotum nokkrum sinnum yfir veturinn. Í boði er að taka við allri þjálfun á vegum félagsins eða hluta af henni.

Félagið sér um að útvega íbúð og getur aðstoðað við að finna vinnu með, en þjálfunin telst ekki fullt starf.

Áhugasamir hafi samband við formann félagsins í gegnum netfangið sigurdurjh@internet.is sem fyrst.

Deila