Fréttir

Slútt blakdeildar Vestra - bestu og efnilegustu leikmenn meistaraflokka valdir

Blak | 22.05.2017

Þau Kjartan Óli Kristinsson og Þorgerður Karlsdóttir voru valin bestu leikmenn meistaraflokka blakdeildar Vestra á tímabilinu. Hafsteinn Már Sigurðsson og Katla Vigdís Vernharðsdóttir voru valin efnilegust. Það var Tihomir Paunovski þjálfari sem valdi og tilkynnti niðurstöðurnar á slútti sem blakarar héldu á strandblakvellinum í Tungudal síðasta fimmtudagskvöld.

Slúttið markaði lok inniblaktímabilsins, en blakarar verða duglegir að nýta strandblakvellina í Tungudal og á Þingeyri í sumar. Farið var í leiki og strandblak í sandinum, grillaðar pylsur og yngriflokkaleikmenn fengu viðurkenningarskjöl.

Tihomir þjálfari er nú farinn í sumarfrí til Makedóníu, en hann stefnir á að koma aftur næsta vetur og halda áfram að þjálfa hjá Vestra.

Deila