Fréttir

Vestri einn og hálfur

Blak | 08.02.2026
Allir saman
Allir saman

Laugardaginn 7 febrúar fór fram á Torfnesi, leikur í úrvalsdeild karla í blaki, þegar heimamenn í Vestra tók á móti vinum okkar í Aftureldingu.  Hér fyrir vestan er þetta lið Aftureldingar stundum kallað af gárungunum, Vestri Bé, því í liðinu eru þrír fyrrum leikmenn Vestra.

Fyrir leikinn voru liðin í 4 og 5 sæti í deildinni, Afturelding í því efra í spennandi toppbaráttu, með 34 stig en Vestri á lygnum sjó fyrir miðri deild með 19 stig.

Leikurinn var hin besta skemmtun, þrátt fyrir að augljóst væri að gestirnir mættu ákveðnir til leiks.

Fyrsta hrina var nokkuð jöfn til að byrja með, en í stöðunni 10-9 fyrir gestunum, sigu þeir fram úr, náðu mest 6 stiga forskoti og kláruðu hrinuna 25-21

Önnur hryna byrjaði svipað og sú síðasta, en þegar komið var fram yfir 10 stigin, settu gestirnir í túrbógírinn og einokuðu stigatöfluna.  Hrinunni lauk 25-12.

Í þriðju hrinunnu voru heimamenn búnir að spýta vel í lófana og leiddu hrinuna framan af.  Gestirnir náðu hinsvegar að jafna í stöðunni 12-12 og leiddu hrinuna eftir það með nokkrum stigum.  Spenna var því fram á síðasta stig, en gestirnir náðu þriðju hrinunni einnig, en nú með minnsta mun 25-23 og þar með leikinn 3-0.

Stigahæstir heimamanna voru Juan Escalona, með 10 stig og Sverrir Bjarki með 9 stig.  Stigahæstir gestanna voru svo Tomek Leik með 23 stig, og gömlu Vestrastrákarnir Hafsteinn Már með 13 stig og Antonio með 6 stig.

Á næstu helgi er Vestraliðið á faraldsfæti, en þeir sækja þá heim Þrótt í Neskaupstað og er það næst síðasta ferðalag tímabilsins.

Deila