Fréttir

Benedikt Warén aftur kominn vestur!

Knattspyrna | 29.01.2023

Breiðablik og Vestri hafa komist að samkomulagi um vistaskipti Benedikts til Vestra.

Eru þetta miklar gleðifréttir fyrir okkur en Benó spilaði með Vestra sumarið 2021 og stóð sig með mikilli prýði.

Við bjóðum Benó aftur velkominn vestur og hlökkum til að sjá hann á vellinum í vor og sumar!

Áfram Vestri!

Deila