Knattspyrna | 06.10.2010
Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að Guðjón Þórðarson var í dag ráðinn þjálfari meistaraflokks BÍ/Bolungarvíkur. Bibol.is tók til fréttaumfjöllun dagsins. Fyrstu fréttirnar voru mjög svipaðar þar sem vitnað var í yfirlýsingu stjórnar sem birtist hér á vefnum í morgun. Seinna fór síðan að bera á viðtölum við Samúel stjórnarmann og Guðjón sjálfan. Síðan var fjallað um málið í íþróttafréttum Rúv og Stöðvar 2 í kvöld.