Fréttir

Heiðar Birnir tekur við Vestra

Knattspyrna | 25.10.2020
Sammi og Heiðar
Sammi og Heiðar

Stjórn Knd Vestra hefur ráðið Heiðar Birnir Torleifsson sem þjálfara mfl karla, en Heiðar mun taka við liðinu að loknu núverandi tímabili, þegar Bjarni Jóhannsson lætur af störfum.

Heiðar þarf vart að kynna fyrir heimafólki, en hann er að sjálfsögðu uppalinn Ísfirðingur og verður aðstoðarmaður Bjarna s.l. árið.

Stjórn knd bindur miklar vonir við ráðninguna á Heiðari, enda gríðarlega metnaðarfullur þjálfari með miklar skoðanir á leiknum og hungraður að ná í árangur.

Enn stendur yfir leit að aðstoðarmanni Heiðars, en Fannar Karvel og Sparta munu halda áfram að sjá um styrktar- og þolæfingar liðsins.

Áfram Vestri!

Deila