Fréttir

Heimaleikur gegn Aftureldingu | Sunnudaginn 27. maí kl 15:00

Knattspyrna | 24.05.2018
JC skoraði mark okkar manna í síðasta leik
JC skoraði mark okkar manna í síðasta leik

Á helginni munu okkar menn taka á móti Aftureldingu í 4. umferð 2. deildar karla í knattspyrnu.

Afturelding er með 7 stig eftir fyrstu 3 umferðirnar, hafa sigrað Víði og Tindastól en gerðu jafntefli við Völsung í fyrstu umferð mótsins.

Okkar menn eru hinsvegar með 4 stig en svekkjandi lokamínútur í báðum útileikjunum okkar hafa kostað okkur 3 stig.

Við hvetjum alla til að mæta á Olísvöllinn klukkan 15:00 á sunnudaginn og styðja okkar menn til sigurs.

Áfram Vestri !!

Deila