Fréttir

Josh Signey og Brenton Muhammad framlengja samninga sína

Knattspyrna | 19.11.2018
1 af 2

Það er alltaf nóg að gera á skrifstofunni, en í dag skrifuðu þeir Josh Signey og Brenton Muhammad undir framlengingu á samningum sínum við Vestra.

Signey, sem er miðjumaður, koma til okkar fyrir síðustu leiktíð og sýndi frábæra takta í sumar. Hann fór aftur út í byrjun ágúst þar sem hann var að klára síðasta ár sitt í háskóla. Hann endaði háskólaboltann á að sigra sína deild ytra og kemur því hungraður til okkar eftir meiru.

Brenton Muhammad, sem kom til okkar frá Tindastól fyrir síðasta tímabil barðist við Daða um markvarðarstöðuna í sumar. Brenton er öflugur markmaður sem og gríðarlega mikilvægur í hóp. Til gamans með geta að Brenton er landsliðsmarkvörður Antígva og Barbúda.

Það er okkur mikið ánægjuefni að þessir drengir hafi skrifað undir og því breyting á hópnum milli ára að verða lítil, en byggt hefur verið upp með að halda í góða leikmenn í lengri tíma en 1 ár í senn.

Við óskum drengjunum góðs gengis með Vestra og bjóðum þá hjartanlega velkomna aftur!

Áfram Vestri!

Deila