Fréttir

Krakkar á hæfileikamótun KSÍ

Knattspyrna | 18.09.2017
1 af 2

KSÍ boðaði 6 iðkendur Vestra á hæfileikamótun KSÍ sem haldin var á Akranesi á helginni.  Fimm áttu heimagengt þau Linda Rós Hannesdóttir, Lilja Borg Jóhannsdóttir, Arnar Rafnsson, Gautur Óli Gíslason og Gabríel Eiríksson.  Það er mikil reynsla og einstaklega gaman fyrir þessa krakka að fara á hæfileikamótun KSÍ og spreyta sig með öllum þessu flottu fótboltakrökkum sem komu núna af öllu Vesturlandi og Vestfjörðum. Krakkarnir stóðu sig að vanda mjög vel og skemmtu sér frábærlega.

Deila