Fréttir

Kundai Benyu til liðs við Vestra

Knattspyrna | 24.02.2021

Vestri hefur samið við sóknarmiðjumanninn Kundai Benyu.

Kundai, sem er 23 ára gamall, spilaði síðast hjá Wealdstone á Englandi, en hann er uppalinn hjá Ipswich, þar sem hann var 2011-2017. Þaðan hélt leiðin til Celtic í Skotlandi.

Til gamans má geta að Kundai hefur spilað fyrir Helsingborg, þar sem hann hitti fyrir okkar mann, Andra Rúna, en Andri ber honum vel söguna og segir að hann muni koma til með að styrkja liðið mikið.

Kundai er lýst sem teknískum, snöggum leikmanni.

Við hlökkum til að sjá þennan öfluga miðjumann á vellinum og bjóðum hann innilega velkominn til Vestra!

Deila