Fréttir

Samið um starfslok Guðjóns

Knattspyrna | 20.10.2011 Í gærkvöldi var gengið frá starfslokum þjálfarans Guðjóns Þórðarsonar eftir eins árs samstarf hjá félaginu. Tilkynning frá stjórn félagsins var svo hljóðandi.

Meistaraflokksráð BÍ/Bolungarvíkur og Guðjón Þórðarson hafa samið um starfslok Guðjóns hjá félaginu. Guðjón var ráðinn þjálfari meistaraflokks BÍ/Bolungarvíkur síðastliðið haust og undir hans stjórn náði félagið sínum besta árangri frá upphafi á Íslandsmótinu í knattspyrnu nú í sumar. Þá náði liðið líka frábærum árangri í Valitor bikarkeppninni.

 

Þakka stjórnendur félagsins Guðjóni af heilum hug fyrir gott samstarf og afar vel unnin störf fyrir félagið og í þágu knattspyrnunnar fyrir vestan. Guðjón þakkar stjórnendum félagsins, styrktaraðilum, stuðningsmönnum og leikmönnum liðsins fyrir gott og farsælt samstarf.

Deila