Vestra stúlkur í 5. og 6. flokki tóku þátt í hinu árlega Símamóti Breiðabliks í Kópavogi 09.-12. júlí sl.
Símamótið sem var fyrst haldið árið 1985 er stærsta knattspyrnumót landsins með um 3.200 keppendur ár hvert.
Að þessu sinni sendi Vestri fjögur lið til leiks, 2 lið úr hvorum flokki. Frammistaða stúlknanna var til mikillar fyrirmyndar og þess má geta að bæði 6. flokks liðin léku til úrslita í sínum styrkleika flokkum.
ÁFRAM VESTRI ⚽️
Deila