Fréttir

50 ára afmæli körfuknattleiksamband Íslands í Smáralind á laugardag

Körfubolti | 24.01.2011
Við eigum afmæli
Við eigum afmæli
Sælir félagar
 
Núna á laugardaginn verður KKÍ 50ára og af því tilefni verður Körfuboltadagur í Vetrargarðinum í Smáralind. Eins og áður hefur komið fram er það stefna stjórnar og afmælisnefndar KKÍ að kynna körfuboltann sem víðast og reyna að höfða til allra aldurshópa á afmælisárinu ,  því er tilvalið að hefja afmælisárið með fjölskylduskemmtun sem þessari.  Ég bið ykkur að áframsenda þennan póst á alla þá sem starfa innan ykkar félags sem og að setja frétt um þennan merkisdag á ykkar heimasíður í vikunni – ég sendi hér með í viðhengi logo afmælisársins.
Dagskrá hátíðarinnar á laugardag:
14.00 Opnun hátíðarinnar í Smáralind
Afmæliskaka í boði fyrir alla gesti -Jóel Sæmundsson körfuboltamaður og leikari tekur við stjórninni og stýrir dagskrá og viðburðum.
14.10 Körfuboltastöðvar, leikmenn Iceland Express deilda sprella með gestum og gangandi.
- víti, drippl, skot, stinger, sendingar og fleira fyrir krakka til að prufa
14.30 Leikmenn úr Iceland Express deildum karla og kvenna sýna listir
- 3ja-stiga keppni milli sigurvegara Stjörnuleiks karla og kvenna
- Keppt í einfaldri þrautabraut á tíma
15.00 Formleg setning afmælisársins
Hannes Sigurbjörn Jónsson formaður heldur stutta tölu og kynnir árið, happdrættið og fleiri viðburði á árinu og setur afmælishátíðina og afmælisárið.
15.15 Latibær kemur í heimsókn
15.45 Körfuboltastöðvar halda áfram
- víti, drippl, skot, stinger, sendingar og fleira fyrir krakka til að prufa
17.00 Formlegri dagskrá lýkur
Að auki verða plaköt gefin, Playstation kassar með NBA Jam leiknum verður á staðnum fyrir gesti að prófa svo eitthvað sé nefnt.
Ég hlakka til að hitta ykkur í Smáralindinni á næsta laugardag !
Körfboltakveðja,
Hannes S.Jónsson
Formaður / President
Körfuknattleikssambands Íslands - KKÍ
Deila