Fréttir

8. flokkur drengja í framför

Körfubolti | 01.02.2010
8. flokkur drengja
8. flokkur drengja
Leikur #1
ÍR-KFÍ  48-13
Fyrsti leikurinn reyndist erfiður.  Strákarnir ekki alveg að átta sig á verkefninu og völtuðu ÍR-ingar yfir okkur.
Stigin:
Hákon Halldórsson 6
Sigurður Benediktsson 2
Andri Skjaldarson 2
Kjartan Guðnason 2
Helgi Bergsteinsson 1

Leikur #2
KfÍ-FSU 23-28
Nú voru Vestfirðingar vaknaðir og vörn og barátta til fyrmyndar.  Með smá heppni hefðum við getað landað sigri en það hafðist ekki að þessu sinni
stigin:
Hákon Halldórsson 8
Kolmar Halldórsson 4
Helgi Bergsteinsson 4
Andri Skjaldarson 4
Kjartan Guðnason 2
Dagbjartur Jónsson 1

Leikur #3
KFÍ-Fjölnir 24-50
Fínn leikur hjá strákunum gegn sterku liði Fjölnis.  Strákarnir mættu baráttuglaðir til leiks minnugir ófaranna gegn Fjölni í síðasta móti.  Við náðum að minnka muninn í 8 stig í byrjun 4. leikhluta en lokakaflinn varð arfaslakur hjá okkur og breyttist staðan úr 22-28 í 24-50 sem reyndist lokastaðan.  Slæmur kafli það.  Hins vegar flottur leikur að 3/4 hlutum.
Stigin:
Helgi Bergsteinsson 10
Dagbjartur Jónsson 7
Hákon Halldórsson 4
Hálfdán Jónsson 3

Leikur #4
Sindri-KFÍ 42-31
Þessi leikur byrjaði ansi illa hjá okkar piltum.  10-1 undir eftir fyrsta fjórðung og 23-5 í hálfleik.  Strákarnir baráttulitlir og hálf ráðvilltir í fyrri hálfleik en eftir góða hvatningarræðu frá Dóra Svenna aðstoðarþjálfara komu þeir klárir í síðari hálfleikinn og unnu hann 26-8.  Mikill viðsnúningur það og gott að enda mótið á jákvæðu nótunum.
Stigin:
Hákon Halldórsson 15
Hálfdán jónsson 7
Kjartan Guðnason 2
Helgi Bergsteinsson 2
Andri Skjaldarson 2
Óskar Stefánsson 2
Dagbjartur Jónsson 1

Þótt enginn sigur hafi unnist að þessu sinni þá er liðið orðið mun betra en í síðasta móti, strákarnir farnir að átta sig á hlutunm og æfingar greinilega farnar að skila árangri.  Helsta vandamál liðsins er hversu illa gengur að spila saman, strákarnir oft fullákafir í að skora sjálfir.  Ljóst er þó að ekki skortir viljann og báráttugleiðina og alveg ljóst að leiðin liggur bara upp á við.  Styttist í sigurinn.


Deila