Fréttir

Arna Hrönn bætist í hópinn

Körfubolti | 02.10.2020
Skallagrímskonan Arna Hrönn Ámundadóttir kemur til liðs við Vestra.
Skallagrímskonan Arna Hrönn Ámundadóttir kemur til liðs við Vestra.

Bakvörðurinn Arna Hrönn Ámundadóttir bætist í leikmannahóp meistaraflokks kvenna hjá Vestra. Arna Hrönn er fædd árið 2001 og hefur spilað upp alla yngri flokka hjá Skallagrími en verið hluti af meistaraflokki bikarmeistaranna undanfarin fimm ár þrátt fyrir ungan aldur. Arna kemur til Vestra í gegnum venslasamning við Skallagrím og mun breikka hópinn fyrir komandi átök í 1. deildinni.

Arna er við nám í Reykjavík en æfir með Skallagrími í Borgarnesi og mun líkt og Helena Haraldsdóttir einkum hjálpa liðinu í útileikjum.

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Vestra býður Örnu velkomna í hópinn.

Deila