Fréttir

Fernando Bethencourt Muñoz tekur við þjálfun KKD Vestra

Körfubolti | 19.05.2026

KKD Vestri hefur samið við spænska þjálfarann Fernando Bethencourt Muñoz til næstu tveggja ára. Fernando tekur við sem aðalþjálfari meistaraflokks karla og verður jafnframt yfirþjálfari yngri flokka félagsins.

Fernando kemur til félagsins með víðtæka alþjóðlega reynslu af þjálfun meistaraflokka og yngri flokka. Hann hefur meðal annars starfað á Íslandi, Spáni, Lúxemborg og Írlandi Hann hefur einnig starfað með Tindastóli á Íslandi og unnið að uppbyggingu yngri flokka hjá félögum á borð við BBC Telstar Hesperange og Lenovo Tenerife. Einnig hefur hann tekið þátt evrópskum keppnum með kvennaliði BBC Gréngewald Hueschtert í Lúxemborg tímabilið 2020/21

Á ferli sínum hefur Fernando unnið til fjölda verðlauna, þar á meðal Íslandsbikarinn með Tindastóli tímabilið 2017/18, U20 deild 2 á Íslandi tímabilið 2023/24 og gull- og silfurverðlaun á Smáþjóðaleikunum 2023 með 3x3 landsliðum Lúxemborgar.

KKD Vestra bindur miklar vonir við komu Fernando og það starf sem fram undan er, bæði með meistaraflokki karla og í áframhaldandi uppbyggingu yngri flokka félagsins.

Við bjóðum Fernando hjartanlega velkominn til Vestra. Þökkum um leið Birgi fráfarandi þjálfara fyrir vel unnin störf á síðastliðnum tímabilum. Þá er Reinis Vilks á förum frá félaginu en hann hefur samið við erlent félag og er honum einnig þakkað fyrir sín störf sem þjálfari yngri flokka hjá félaginu.

Deila