Fréttir

Gólfið vígt með tvíhöfða gegn ÍA

Körfubolti | 19.01.2018
Meistaraflokkur Vestra mætir ÍA í tveimur leikjum á nýja gólfinu á Torfnesi um helgina.
Meistaraflokkur Vestra mætir ÍA í tveimur leikjum á nýja gólfinu á Torfnesi um helgina.

Framundan er sannkölluð heimaleikjahelgi í körfunni. Langþráð nýtt gólf í íþróttahúsinu og verður tekið í gagnið í tveimur heimaleikjum gegn Körfuknattleiksfélagi ÍA í 1. deild karla. Fyrri leikurinn hefst kl. 18:00 á laugardag og sá síðari kl. 14:00 á sunnudag. Áhorfendum er sérstaklega bent á að brýnt er að ekki sé farið inn á gólfið á útiskóm til að hlífa því. Auk þess sem nýtt gólf verður tekið í notkun verður sömuleiðis nýtt hljóðkerfið tekið í gagnið.

En þá er ekki öll sagan sögð því svokallað flaggskip deildarinnar B-lið Vestra tekur á móti Fjarðabyggð á sunnudagsmorguninn kl. 10:30. Sá leikur fer þó fram í Musterinu í Bolungarvík vegna tilmæla frá verktaka um að hlýfa nýlökkuðu gólfi Torfnessins við þungum hlutum.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta á þessa leiki og berja um leið augum hið glæsilega nýja gólf.

Áfram Vestri!

Deila