Fréttir

Hamraborgarmótið 2017

Körfubolti | 19.01.2017
Allir krakkar í 1.-6. bekk eru velkomnir á Hamraborgarmótið 2017.
Allir krakkar í 1.-6. bekk eru velkomnir á Hamraborgarmótið 2017.

Meistaraflokkur kkd. Vestra karla og Hamraborg sameina krafta sína í stórskemmtilegu minniboltamóti á Torfnesi á mánudaginn kemur, 23. janúar. Mótið hefur hlotið heitið Hamraborgarmótið 2017 og er vonandi komið til að vera í fjölbreyttri vetrardagsrká kkd. Vestra.

Öll börn í 1.-6. bekk eru boðin velkomin á mótið en keppt verður í þremur aldurshópum. Iðkendur kkd. Vestra eru hvattir til að fjölmenna á mótið og taka vini sína með. Mótið stendur frá 16-19 og lýkur með glæsilegri pizzaveislu í boði Hamraborgar.

Hamraborgarmótið er tilvalin upphitun fyrir hið stóra Nettómót í Reykjanesbæ sem fram fer fyrstu helgina í mars en það er stærsta minniboltamót landsins ætlað börnum í 1.-5. bekk. Líkt og fjölmörg undanfarin ár mun kkd. fara með allmörg lið til keppni enda fá mót skemmtilegri. Margir vaskir körfuboltakrakkar hafa stigið sín fyrstu skref í keppni á parketinu í íþróttahúsum Reykjanesbæjar.

Deila