Fréttir

Heimaleikir gegn Hetti

Körfubolti | 11.01.2019
Meistaraflokkur Vestra mætir Hetti á laugardag og drengjaflokkar liðanna mætast í kvöld föstudag.
Meistaraflokkur Vestra mætir Hetti á laugardag og drengjaflokkar liðanna mætast í kvöld föstudag.

Í kvöld og á morgun rúllar körfuboltatímabilið af stað á ný! Á laugardaginn fer fram leikur Vestra gegn Hetti frá Egilsstöðum á Jakanum og hefst leikurinn kl. 15:00. Í kvöld, föstudag, mætast drengjaflokkar liðanna svo kl. 21:00.

Vestri og Höttur eru í harðri baráttu í efri hluta 1. deildar en bæði lið eru með 14 stig í 3. og 4. sæti deildarinnar. Nokkrar breytingar hafa orðið á leikmannahópum liðanna. Andre Hughes sem lék með Vestra fyrir áramót er genginn í raðir Hattar auk þess sem leikmaður Dino Stipcic, sem lék með KR fyrir áramót og Eysteinn Bjarni Ævarsson kemur frá Stjörnunni. Í herbúðum Vestra hafa bæst við þeir Jure Gunjina, sem lék með Breiðablik í úrvalsdeildinni, og Adam Smári Ólafsson sem kemur frá úrvalsdeildarliði Hauka en hefur einnig leikið með Selfossi í 1. deildinni í haust.

Við hvetjum alla til að mæta á Jakann og styðja við strákana. Gamla lága miðaverðið 1.000 kr. en afsláttur til eldri borgara og öryrkja.

Drengjaflokkar Vestra og Hattar mætast svo einnig í kvöld, föstudaginn 11. janúar, á Jakanum kl. 21:00. Enginn aðgangseyrir er að þeim leik og upplagt að koma við og sjá þessa efnilegu stráka spila.

Deila