Fréttir

Hilmir og Hugi taka slaginn með Vestra

Körfubolti | 06.07.2021
Ljósmyndir: Anna Ingimars.
Ljósmyndir: Anna Ingimars.

Hilmir og Hugi Hallgrímssynir hafa samið við Vestra um að leika með liðinu í úrvalsdeild karla á komandi tímabili. Þeir bræður voru lykilmenn í liðinu seinnihluta síðasta tímabils og áttu stóran þátt í því að tryggja sæti í úrvalseildinni í vor.

Þá tvíburabræður er óþarfi að kynna fyrir okkar fólki því þeir léku með Vestra og þar áður KFÍ upp alla yngri flokka og allt þar til síðasta sumar þegar þeir gengu til liðs við Stjörnuna í úrvalsdeildinni. Í byrjun þessa árs komu þeir á venslasamningi heim í Vestra og stóðu sig frábærlega á lokakafla deildarkeppninnar og úrslitakeppninnar.

Þessa dagana æfa þeir af kappi með U-20 landsliði Íslands sem leikur einmitt undir stjórn þjálfara Vestra, Pétri Má Sigurðssyni. 

Það er mikið ánægjuefni að fá þá aftur til liðs við Vestra í það krefjandi verkefni að leika aftur í efstu deild eftir nokkura ára hlé.

Deila