Fréttir

Jólakarfa Vestra

Körfubolti | 22.12.2016

Hin árlega jólakarfa Vestra verður á sínum stað að venju á aðfangadag. Löng hefð er fyrir því að körfuboltakappar mæti á aðfangadagsmorgun á Torfnes og hiti þannig upp fyrir jólahátíðina. Yngri iðkendur (frá 1. bekk og upp úr) mæta kl. 10 og skemmta sér til 11.00 en þá mæta rosknari og reynslumeiri leikmenn sem sprikla til kl. 12. Góða skemmtun!

Deila