Fréttir

Körfuboltabúðir KFÍ 2010: Guðni Ó. Guðnason í viðtali á RUV Rás 1

Körfubolti | 14.06.2010
Guðni Guðnason og Sævar Óskarsson stóður í ströngu alla síðustu viku!  (Ljósm. H.Sigm)
Guðni Guðnason og Sævar Óskarsson stóður í ströngu alla síðustu viku! (Ljósm. H.Sigm)

Nú er Körfuboltabúðunum lokið og voru þær gríðarlega vel heppnaðar.  Guðni Guðna framkvæmdastjóri búðanna var í viðtali á RUV í morgunútvarpinu og gaf alþjóð skýrslu um búðirnar.  Við látum fylgja hér með hlekk yfir á hljóðskrá frá ruv.is með viðtalinu frá því í morgun, lesendum til fróðleiks.  Fáu er við orð meistarans að bæta en bendum á að sérstaklega ánægjulegt var að heyra hann fullvissa okkur öll um að stefnt sé að því að endurtaka leikinn að ári síðan, við sem nutum þeirra forréttinda að taka þátt í þessu ævintýri erum nefnilega farin að hlakka til næsta árs!

Viðtalið

Deila