Fréttir

Körfuboltabúðir KFÍ 2011 - Fyrirlestrar dagsins

Körfubolti | 07.06.2011
Tony ræðir um varnaleik
Tony ræðir um varnaleik
1 af 2

Tony Garbaletto reið á vaðið í morgun með fyrirlestur um vörn gegn "pick-and-roll" sóknarleik (Ball screen defence - phyllosophy & concepts). Þeir sem þekkja til Tony kom ekki á óvart hversu skipulega hann gengur til allra verka og sýndi hann það enn á ný í dag.  Frábær yfirferð yfir helstu atriði og hvaða áherslur hann leggur á hjá sínum leikmönnum til þess að verjast þessu klassiska sóknarbragði. 

 

Nebosja Vidic hélt áfram með yfirferð yfir stöðu og líkamsbeitingu, í gær var sóknarleikur á dagskránni en núna var komið að varnarstöðunni. Í mjög góðum fyrirlestri hans (90 mínútur af þéttpökkuðum fróðleik) sýndi hann hvernig varnarmaður kemur sóknarmanni úr jafnvægi og nær undirtökum í baráttunni í og við teiginn. Einnig var eftirtektarvert þegar hann fór yfir hvernig þróun hefur orðið í varnarstöðu og tók hann dæmi um hvernig efri hluti líkamans er nær láréttur í réttri stöðu í dag skv. hinum mæta JR Holden hjá CZKA Moskva.  

 

Að þessum erindum loknum sköpuðust ágætis umræður, sem reyndar eins og hina dagana héldu áfram með hléum allan daginn fram á kvöld, enda ekki við öðru að búast þegar saman eru komnir menn sem hugsa um körfuknattleik jafnt í vöku sem og í svefni. 

Deila