Fréttir

Mariu Magdalenu Kolyandrova til Vestra

Körfubolti | 29.10.2025

Við kynnum til leiks nýjan leikmann meistaraflokks kvenna, Mariu Magdalenu Kolyandrova. María er 28 ára frá Búlgaríu og getur bæði spilað sem leikstjórnandi og bakvörður.

Maria kom til Íslands í fyrra til Stjörnunnar en færði sig fljótlega yfir til ÍR í 1. deild kvenna. Hjá ÍR var Maria með 12,8 stig að meðaltali í leik, 6,4 fráköst og 3,5 stoðsendingar.

Maria á fjölbreyttan feril að baki. Hún hóf atvinnumennskuferilinn 2015–2016 hjá Septemvri 97 í Búlgaríu og lék síðan þrjú tímabil í dönsku úrvalsdeildinni með Lemvig VB. Eftir það tók við eitt tímabil með Montana 2003 í Búlgaríu áður en hún hélt til Belgíu og Þýskalands. Tímabilið 2023–2024 lék hún með SKN St. Pölten í efstu deild Austurríkis, þar sem hún skoraði 9,2 stig og gaf 3,4 stoðsendingar að meðaltali í deild.

Maria mun spila sinn fyrsta leik með VESTRA á sunnumdaginn en þá á meistaraflokkur kvenna heimaleik á móti Njarðvík b. Við bjóðum Mariu hjartanlega velkomna í körfuboltafjölskyldu VESTRA!

Deila