Fréttir

Marko Milicevic til KFÍ

Körfubolti | 08.01.2011
Marco
Marco "pósar" fyrir hjá karfan.is. Mynd Jón Björn.
KFÍ hefur samið við Marko Milicevic en hann kom til landsins á miðvikudagsnóttina og var boðinn velkominn með ferð í vitlausu veðri til Sauðárkróks í blindbyl og sá hann ekkert af landinu nema Staðarskála í smá stund og svo beint í leik gegn Tindastól þar sem hann sýndi fína takta svone rétt ný kominn var með 13 stig og 8 fráköst  og mun klárlega hjálpa okkur. Marko lék síðast með Triglav í Slóveníu en hefur m.a. komið við hjá Livorno í Serie A á Ítalíu.
 
 Á karfan.is sagði kappinn við Jón Björn snilling; ,,Ég vonast til að geta fært KFÍ það sem þarf til að gera breytingar á stöðu liðsins í deildinni, ég hef verið í þessari stöðu og í Slóveníu lék ég m.a. hjá klúbbi sem var 6-0 þegar ég kom en við náðum okkur í 6-6 og það væri gaman að endurtaka þann leik nú með KFÍ,”
 
KFÍ býður Marko velkominn til Vestfjarða.
 
Deila