Fréttir

Páskaeggjamót Nóa Siríusar og KFÍ

Körfubolti | 25.03.2013

Hið árlega páskaeggjamót fer fram venju samkvæmt næstkomandi fimmtudag, Skírdag. Hefst það kl. 11.00. 
Þátttökugjaldið það sama og venjulega eða 
kr. 1000 á mann
kr. 500 í yngri flokka
kr. 0 fyrir iðkendur yngri en 18 ára hjá KFÍ

Reglur í 2 á 2 mótinu:

Stefnt er að keppni í eftirfarandi flokkum
18 ára og eldri karla
16 ára og eldri kvenna
13-15 ára drengir
13-15 ára stúlkur

12-14 ára drengir

12-14 ára stúlkur

10-12 ára drengir

10-12 ára stúlkur

Mótstjórn hefur óskorað vald til breytinga á flokkum, fer eftir skráningum hvernig endanleg skipting verður.  Skráning fer fram á mótsstað.

Í elsta flokki er óheimilt að manna lið 2 meistaraflokksmönnum, meistaraflokksmaður telst sá sem spilaði meira en 40 mínútur samtals með liði sínu í 1..deild og ofar skv. tölfræðisíðu KKÍ  í vetur.

Spilað í 5 mínútur, sóknin dæmir. Lið skiptast á að vera í sókn(ekki make it take it). Verði lið jöfn í leikslok þá ráðast úrslit í vítakeppni.

Annars er það mótsstjórn sem ræður öllu á endanum, þannig að óþarfi er að rífast, enda hefur það ekkert upp á sig :)

Deila