Fréttir

Sigur gegn Grindavík í drengjaflokki

Körfubolti | 23.11.2009
Farið yfir málin
Farið yfir málin
Grindvíkingar voru skrefinu á undan allan leikinn en KFÍ aldrei langt á eftir.  Grindavík einu stigi yfir eftir fyrsta fjórðung og eins í hálfleik, staðan 32-33.  Grindavík nær síðan góðum kafla í 3. fjórðungi og virtust vera að sigla fram úr en strákarnir okkar gáfust ekki upp.  Í stöðunni 34-44 skorum við síðustu 8 stig 3. fjórðungs og er þá 2 stiga munur áður en lokafjórðungurinn hefst.

KFÍ nær loks að jafna er 3 mínútur voru eftir og komast yfir mínútu síðar en svo siglum við fram úr og vinnum leikinn 67-61.  Grindvíkingar voru einungis 7 og var greinilegt að þreytan var farin að segja til sín.  Þeir skora einungis 6 stig á síðustu 5 mínútum leiksins og við nýtum það til að knýja fram góðan sigur gegn góðu liði Grindavíkur.  Margir bráðefnilegir spilarar þar.
Stigin:
Nafn Stig Vítanýting Þriggja
Florijan Jovanov 28 5-5 1
Guðmundur Guðmundsson 15   2
Sævar Vignisson 9 2-2 1
Leó sigurðsson 5   1
Hákon Atli Vilhjálmsson 4 2-2  
Óskar Kristjánsson 4    
Stefán Diego 2 2-0  
Deila