Fréttir

Þjálfaralisti búðanna klár og skráningar streyma inn

Körfubolti | 28.03.2017
Þjálfarahópur Körfuboltabúða Vestra 2017 með Inga Þór Steinþórsson, yfirþjálfara, í broddi fylkingar.
Þjálfarahópur Körfuboltabúða Vestra 2017 með Inga Þór Steinþórsson, yfirþjálfara, í broddi fylkingar.

Körfuboltabúðir Vestra fara fram dagana 30. maí til 4. júní en búðirnar eru nú haldnar níunda árið í röð. Opnað var fyrir skráningar í síðustu viku en rúm er fyrir tæplega 150 iðkendur. Allt stefnir í að búðirnar fyllist á örskömmum tíma því skráningar streyma inn. Sjaldan eða aldrei hefur þjálfaralisti búðanna verið jafn vel mannaður; tíu þrautreyndir aðalþjálfarar hafa verið ráðnir til leiks auk þess sem álíka margir aðstoðarþjálfarar munu koma að búðunum.

Yfirþjálfari í ár er Ingi Þór Steinþórsson, yfirþjálfari Snæfells en hann á að baki fjölda Íslandsmeistaratitla með liðum sínum. Aðrir þjálfarar eru: Yngvi Páll Gunnlaugsson, yfirþjálfari Vestra, Borche Ilievski frá Makedóníu, yfirþjálfari ÍR og einn af upphafsmönnum Körfuboltabúðanna á Ísafirði, Lárus Jónsson, yfirþjálfari Breiðabliks, Nebojsa Knezevic frá Serbíu, þjálfari og leikmaður Vestra, Natasa Angelic frá Serbíu, þjálfari, umboðsmaður og fyrrum landsliðskona Serbíu, Keegan Bell frá Bandaríkjunum, þjálfari hjá Alabama Basketball Academy, Fran Garcia frá Spáni, þjálfari Bembibre í efstu deild kvenna á Spáni, Stephanie Douglas frá Bandaríkjunum, þjálfari, fyrrverandi NCAA leikmaður og meðlimur í Harlem Globetrotters og loks Michael Mader frá Bandaríkjunum, þjálfari við Franklin D. Roosevelt High School í New York.

Körfuboltabúðir Vestra eru ætlaðar iðkendum á aldrinum 10-16 ára og hafa börn af öllu landinu sótt búðirnar heim í gegnum tíðina. Óhætt er að fullyrða að búðirnar séu þær vönduðustu sem völ er á hér á landi og standast þær fyllilega samanburðinn við æfingabúðir erlendis. Iðkendur sem koma að gista á heimavist Menntaskólans á Ísafirði eða með foreldrum sínum úti í bæ, rekið er mötuneyti sem annar 200 manns alla daga búðanna en það eru foreldrar Vestrabarna í búðunum sem sinna hinum ýmsu sjálfboðastörfum á meðan á þeim stendur. Mörg fyrirtæki og stofnanir á svæðinu styðja dyggilega við rekstur búðanna og hafa gert í gegnum árin og verður aðkoma þeirra seint fullþökkuð.

Skráning iðkenda fer fram hér á heimasíðu Vestra. Einnig eru búðirnar með facebook síðuna Körfuboltabúðir Vestra sem upplagt er að læka til að fá nýjustu fréttir jafnóðum.

Deila