Fréttir

FJÖLNISMÓt

Sund | 23.11.2011 Sæl Öll

Þá eru línur farnar að skýrast varðandi Fjölnismótið.

Farið verður með flugvél, mæting á flugvöllinn kl. 10:50 á föstudag, og brottför úr Reykjavík kl. 15:15 á sunnudag, lent á Ísafirði kl.15:55.

Sótt hefur verið um leyfi fyrir hópinn á fös. í báðum skólum, GÍ og MÍ.

Krakkarnir þurfa að hafa með sér svefnpoka/sæng og lak, það verður gist  á farfuglaheimilinu í Laugardal sem er við hliðina á Laugardalslauginni.
3-4 handklæði
Sundföt, sundgleraugu, sundhettu og vatnsbrúsa á bakkann.
Bakkaföt, stuttbuxur, bol og innskó (þetta er innilaug og getur orðið ansi heitt á bakkanum)
Auka föt.
Tannbursta og aðrar nauðsynlegar hreinlætisvörur
Ekki gleyma Hsv-gallanum í flugið og góða skapinu.
Öll rafmagnastæki eins og i-pod, farsíma og tölvur  hafa krakkarnir með sér á eigin ábyrgð.

Ekki er ætlast til þess að krakkarnir hafi með sér vasapening og minnum við á að allar ferðir á vegum Vestra er gos- og nammilausar.
Hins vegar reynum við að ljúka góðri ferð á því að fá okkur ís einhversstaðar  og er það í boði Vestra.

Fararstjórar í ferðinni verða:
Jón Arnar Gestsson  s. 8997171 ( pabbi Laufeyjar Huldu)
Haraldur s. 8403327  ( pabbi Hafdísar)
Rúnar Helgi Haraldsson s. 8227415 ( pabbi Emmu )
Þjálfarar í ferðinni eru Martin og Gunna

Kostnaður ferðarinnar greiðist inn á

reikningsnúmer:
0556-26-282
kennitala:
430392-2399

og senda kvittun á mimir@internet.is

Ef einhverjar spurningar vakna hjá foreldrum um ferðina þá er alltaf hægt að hafa samband og fá upplýsingar hjá Guðbjörgu í síma   8457246  


Ég vil einnig benda á síðu mótsins http://fjolnir.is/sund/atburdir/2011-2012/unglingamot/, þar er hægt að skoða allt um mótið.
Góða ferð og skemmtun.
Kv. Stjórn Vestra
Deila