Fréttir

Sundárið 2015-2016 - Félagafundur FRESTAÐ!

Sund | 19.08.2015 Sæl öll.

Nú er komið að nýju sundárið og ætlum við að hefja það á félagafundi sunnudaginn 30. ágúst (nánari tímasetning verður sett inn þegar hún berst) þar sem að eftirfarandi hlutir verða á dagskrá:

  • Vetrarstarfið, kynning á atburðadagatali og tímaáætlun
  • Kynning á foreldraráði
  • Kynning á Hollvinafélagi
  • Slit Sundfélags Vestra og þátttaka í stofnun nýs fjölgreinafélags
  • Fyrirspurnir vegna nýs félags
  • Önnur mál

Þetta verður síðasti fundur Sundfélagsins Vestra fyrir sameiningu undir nýju félagi og verður stofnfundur félagsins í framhaldi af þessum félagafundi. Á fundinum verður bæði rétt um starfið í vetur ásamt nýju félagi og hverju það mun breyta fyrir okkur. Því hvetjum við alla til þess að fjölmenna bæði á félagafundinn sem og stofnfund nýs félags.


Nú fara að detta inn atburðadagatal og stundaskrá sundfélagsins en það er enn verið að vinna í að fá samþykkt frá bænum fyrir æfingartímum. Erum að bæta lengja aðeins laugartímana okkar sem verður vonandi ekkert vandamál. Einnig er verið að taka til í hópaskiptingum en gróft skipulag verður að þeir sem eru fæddir 2001 og fyrr verða í gullhóp og þer sem eru fæddir 2002 og síðar verða í silfurhóp. 
Allt verður svo kynnt gaumgæfilega á félagafundinum og þar er góður tími til að bera framm spurningar og athugasemdir.


Deila