Fréttir

Blakæfingar hjá fullorðnum hefjast fimmtudaginn 2. september.

Blak | 25.08.2010

Gert er ráð fyrir þremur æfingum  á viku í karla- og kvennaflokki og verða þær líklega á sama tíma og síðasta vetur, að auki stendur til að bjóða upp á sérstaka byrjendatíma fyrir konur einu sinni í viku. Tímasetning æfinga verður sett hér á heimasíðuna um leið og stundatafla fyrir íþróttahúsið verður gefin út.

Fálagið mun í vetur halda úti kvennaliði í 3.deild Íslandsmótsins í blaki og mun jafnframt halda eitt af þremur mótum Íslandsmótaraðarinnar í lok október.

Allmörg undanfarin ár hefur félagið sent lið á Öldungamót BLÍ, næsta vor verður mótið haldið í Vestmannaeyjum og er stefnan sett á að senda a.m.k. eitt karla og eitt kvennalið.
Eins og kemur fram í frétt hér á síðunni mun Jamie Landry verða aðalþjálfari í vetur.

Deila