Fréttir

Góður rekstur og stjórn endurkjörin

Blak | 08.04.2026
Kvennalið Vestra í blaki varð deildarmeistari í 1 deild vorið 2025, þrátt fyrir að hafa verið úthlutað aðeins örfáum æfingatímum
Kvennalið Vestra í blaki varð deildarmeistari í 1 deild vorið 2025, þrátt fyrir að hafa verið úthlutað aðeins örfáum æfingatímum

Blakdeild Vestra hélt aðalfund sinn, þriðjudaginn 31 mars sl.

Vel var mætt á fundinn og góðar umræður fóru fram um starfið síðasta ár og það sem framundan er.  Í ársreikningi mátti sjá að reksturinn var í ágætis málu og viðunandi afgangur af rekstri, en hjá íþróttafélagi úti á landi með mörgum og dýrum ferðalögum er reksturinn alltaf sveiflukenndur.

Undir liðnum kosningar, var sitjandi stjórn að mestu endurkjörin, en tveir nýjir aðilar komu inn sem varamenn. Sigurður Hreinsson er áfram formaður deildarinnar en aðrir í stjórn eru eftirfarandi: Sólveig Pálsdóttir, Heimir Hansson, Signý Þöll Kristinsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir. Varamenn eru þau Katarzyna Maliszewska, Katla Vigdís Vernharðsdóttir og Grétar Logi Sigurðsson.

 

Skýrsla stjórnar

Ágætu félagar.

Að öðrum árum ólöstuðum, þá verður ekki annað sagt um árið 2025, en að það var án vafa besta starfsár Blakdeild Vestra til þessa.  Ágæt starfsemi í yngri flokkum félagsins og hjá meistaraflokkunum og öldungaglokkum voru áskoranirnar með þeim allra stærstu. Þá var strandblak stundað af miklu kappi.

Það er því vel við hæfi að halda í þann góða sið að segja síðasta ár hafa verði það besta í sögu deildarinnar til þessa.

Iðkendur

Starfsemi félagsins og iðkendafjöldi hefur verið mjög svipað undanfarin ári.

Í vetur hefur blakdeildin haldið úti æfingum á Ísafirði og í Bolungarvík, en að auki voru kvennaliðin með eina æfingu á Suðureyri síðasta vetur.  En Íþróttafélagið Stefnir hefur haldið úti blakæfingum fyrir krakka á Suðureyri.

Þjálfaramál

Haustið 2020 tók Juan Escalona við starfi aðalþjálfari blakdeildar Vestra.  Auk þess að þjálfa alla flokka í blaki er hann leikmaður í úrvalsdeildar-karlaliði Vestra og sannarlega betri en enginn.

Vorið 2025 var skrifað undir tveggja ára samning við Juan með endurskoðunarákvæði næsta vor.  Gagnkvæmur áhugi er hjá stjórn og Juan að hann verði áfram hjá félaginu en árangur hans með félaginu er eftirtektarverður.

Síðasta vetur, 2024-25 var einnig starfandi þjálfari hjá okkur, og var sérstaklega með kvennaliðið sem spilaði í 1. deild.  Það var okkar ágæti leikmaður til fjölda ára, spánverjinn Antonio Fernandez Ortiz.

Meistaraflokkar

Eins og ýjað var að hér rétt áður, hélt Vestri úti tveimur kvennaliðum, veturinn 2024-25. B-kvennalið Vestra keppti það tímabil í 4. deild, á Íslandsmóts kvenna.  Eftir fyrstu tvær túnneringar tímabilsins 2024-25 var lið Vestra í efsta sæti deildarinnar, með 20 stig en á loka mótinu, þar sem spilað var til úrslita í efri hluta deildarinnar, endaði liðið í 2. sæti, einu stigi á eftir toppliðinu.  Svipað var svo uppi á teninginum þetta tímabilið en þá var liðið komið upp um deild, liðið í næst efsta sæti eftir fyrstu tvær túnneringarnar og spiluðu því til úrslita í efri hluta deildarinnar.  Á lokamótinu sem haldið var fyrr í mars, endaði liðið svo í 2 sæti í 3ju deild, eftir æsispennandi leiki.

Haustið 2024 hóf 1. deildar-kvennalið Vestra keppni á Íslandsmótinu, þar sem keppnisfyrirkomulagið er að spila heima og heiman.  Skemmst er frá því að segja að árangur liðsins var fram úr björtustu vonum og lauk liðið keppni, sem deildarmeistarar, vorið 2025.  Hópurinn var hinsvegar ekki stór og því frekar viðkvæmir fyrir fækkun á leikmönnum.  Því fór það svo að liðið spilaði aðeins þetta eina tímabil.

Síðustu ár höfum við verið með skráð B-lið í karlaflokki, þar sem við höfum verið með mjög stórann hóp af ungum strákum.  Það lið var skráð í 2.deild á síðasta tímabili og ætlað þeim strákum sem fá lítið af tækifærum með A-liðinu okkar.  Á síðasta tímabili endaði það lið í 7 sæti í deildarkeppninni.  Þetta tímabil, var árangurinn svipaður, liðið sat í 6 sæti fyrir lokamótið.  Á það mót komst liðið hinsvegar ekki á vegna veðurs.

Vorið 2025 lauk karlaliðið sínu sjötta tímabil í úrvalsdeildinni í blaki.  Í vetur eru 18 manns löglegir með liðinu, en af þeim hóp er byrjunarliðið 7-8 leikmenn.  Á síðasta tímabil endaði Vestri í 5 sæti í deildinni.  Árangur þessa tímabils sem er nýlokið hjá okkur var einnig 5 sæti.

Öldungaflokkar

Öldungamótið vorið 2025, Stuðboltinn, var haldið í Mosfellsbæ í byrjun maí.  Okkar fólk mætti að sjálfsögðu þar og kepptu undir okkar gömlu merkjum, Skellur. 

Konurnar spiluðu í 6.deild A og rúlluðu henni upp, tóku gullið með stæl, unnu alla leiki og töpuðu aðeins einni hrinu.  Karlarnir spiluðu hinsvegar í 2. deild og gerðu nánast það sama, tóku gullið með því að vinna alla leiki 2-0, nema þennan eina sem tapaðist í odd. 

Yngri flokkar

Frá Vestra voru send lið á öll mót sem við náðum í lið og í einhverjum tilfellum voru stöku leikmenn lánaðir í önnur lið, til að fá spilatíma. Mót var einnig haldið hér í Torfnesi á Ísafirði helgina 16-18 maí í U12 kk, U12 kvk og U14 kk, þar sem um 40 lið mættu til leiks.

Íslandsmót U16 var haldið á Húsavík helgina 9-11 maí.  Þangað sendum við stúlkulið auk þess sem einn strákur var lánaður frá okkur í lið Þróttar Nes.

Íslandsmót BLÍ að hausti fyrir U16, U14 og U12 var haldið á nokkrum stöðum í borginni helgina 14-16 nóvember.  Á það mót fóru tvö lið frá okkur, U16 kvk og U12 mix og skiluðu bæði lið sér heim aftur með silfur.

U20 kk tók þátt í haustmóti HK sem haldið var 26-28 september.  Þá tóku þeir einnig þátt í Bikarmóti BLI sem haldið var 28-30 nóvember og tóku þar bikarmeistaratitilinn.

Af þessari upptalningu má sjá að hér eru öflugir krakkar og nokkuð bjart yfir framtíðinni.

Landsliðsmenn félagsins

Eitthvað var um landsliðsverkefni á síðasta ári, hjá okkar fólki.  Alls tóku 5 af okkar fólki þátt í landsliðsverkefnum á árinu 2025.  Margrét Embla var valin í A-landsliðið sem keppti á smáþjóðaleikunum síðasta vor.  Grétar Logi var í  úrtaki fyrir U19 landsliðið í sumar, en komst ekki í lokahóp.  Sverrir Bjarki var valinn í A-landsliðs hópinn sem spilaði á Smáþjóðaleikunum í júní á síðasta ári, en gaf ekki kost á sér vegna vinnu og kostnaðar. Það gerði hinsvegar Hafsteinn Már, sem spilaði þar sinn 35 A-landsliðsleik og er hann líklega landsleikjahæsti íbúi Ísafjarðarbæjar, í sögu bæjarfélagsins.

Þá var Þrymur Rafn Andersen valinn í U17 hóp sl haust og spilaði á Smáþjóðaleikum Evrópu sem fram fór í janúar á þessu ári,  en þar vann liðið til gullverðlauna.  Ekki slæmt hjá nýliðanum Þrym að taka gullverðlaun í sínu fyrsta landsliðsverkefni.

Fjárhagur og fjáraflanir

Fjárhagur félagsins hefur í mörg ár verið nokkuð sveiflukenndur en nokkuð tap hefur verið á rekstrinum síðustu ár, en reksturinn var yfir núllinu á síðasta ári.

Ferðakostnaður keppnisliða er sífellt vaxandi viðfangsefni með fjölgun leikja í úrvalsdeild og fækkun á bílaleigum, en kostnaðar vegna aðfluttra leikmanna var á síðasta ári alveg í lágmarki.  Áfram er það eitt af mikilvægustu verkefnunum að efla tekjustofna félagsins, en allar líkur eru á því að lottótekjur séu svotil liðin tíð.

Undanfarin ár hefur félagið fyrst og fremst tekið að sér fjáraflanir sem útheimta vinnuafl (ekki sölufjáraflanir),  fjöruhreinsun í Skutulsfirði, hreinsun á Eyrinni í Skutulsfirði og slátt í kirkjugarðinum í Hnífsdal.

Þá hefur mótahald á yngriflokkamótum verið félaginu drjúg tekjulind, þau ár sem það hefur verið í boði.

Strandblak

Frá því að framkvæmdum lauk við strandblakvöllinn í Tungudal, hefur verið hægur stígandi í iðkun strandblaks í Skutulsfirði.

Á síðasta sumri voru táningarnir okkar nokkuð duglegir að stunda sandinn og mættu á allnokkur stigamót í Íslandsmótaröðinni.

Lokaorð

Ég verð að segja að það er áhyggjuefni að sanngirni og jafnræði í íþróttastarfi virðist eiga undir högg að sækja, ekki síst í boði sveitarfélagsins.

Úthlutun æfingatíma í íþróttahúsum síðustu tvö haust er að mínu mati einhver augljósustu dæmin sem finna má um óheiðarleika tengt íþróttastarfi, hér um slóðir og er án vafa klárt brot á stjórnsýslulögum. Síðasta haust var verulega mikið hallað á blakið, en hefði úthlutun verið sanngjörn og samkvæmt reglum hefði blakið verið með um 30% fleiri æfingatíma.  Og það er sérstaklega sárt til þess að hugsa að í þessu máli brugðust okkur bæði stjórn HSV og aðalstjórn Vestra, þegar við marg reyndum að fá leiðréttingu, því þessi úthlutun var ekkert annað en atlaga að starfi Blakdeildar Vestra.

Þá aðeins um stuðning við afreksstarf.  Hvernig getur það talist eðlilegt að krakkar í hópíþróttum héðan úr sveitarfélaginu, sem valdir eru í dýrar landsliðsferðir fái kannski 30-40 þúsund krónur upp í þann kostnað á sama tíma og aðilar sem stunda ónefndar einstaklingsíþróttir fá styrki sem telja má í milljónum árlega, óháð því hvort að viðkomandi séu íbúar sveitarfélagsins.  Fyrir skemmstu var svo samþykkt í bæjarstjórn sérstök auka greiðsla til tveggja einstaklinga sem fóru á Vetrarólympíuleikana, upp á eina milljón á hvort.  Hvorugt þessara einstaklinga eru íbúar í Ísafjarðarbæ.

Og svo er það íþróttamaður Ísafjarðarbæjar.  Er ekki eitthvað skakkt við það að af síðustu 10 útnefningum, séu aðeins 3 á íbúa í sveitarfélaginu.  Í flestum sambærilegum bæjarfélögum er það skilyrði fyrir tilnefningu að viðkomandi sé íbúi sveitarfélagsins.

Allt saman tekið, hvaða skilaboð eru þetta til okkar, okkar iðkenda og okkar starfs ?

 

Ég vill þakka félagsmönnum fyrir stórkostlegt ár 2025.

Þetta ár og þau næstu bjóða upp á spennandi áskoranir.  Höfum það í huga að blak er íþrótt fyrir alla aldurshópa og virkar bæði fyrir afreksstarf, til eflingar lýðheilsu og allt þar á milli. 

Við höfum haldið úti meistaraflokkum kvenna í næstum 20 ár, höfum staðið fyrir yngriflokkastarfi í jafn langan tíma og undanfarin 7 ár höfum við verið með lið í efstu deild í karlaflokki.  Í gegnum okkar starf hafa komið í heildina 19 landsliðsmenn og þar af 6 manns sem hafa spilað eða spila enn, með A-landsliðunum.

Veturinn 2024-25 var blakdeildin með um 55% af iðkendum í meistaraflokkum, samkvæmt talningu í Torfnesi.  Í okkar hópi er mikið af efnilegum iðkendum og við höfum fulla ástæðu til að bera höfuðið hátt og krefjast þess að tekið sé tillit til okkar. 

Áfram blak og áfram Vestri.

 

Takk fyrir mig.

Sigurður Hreinsson

 

Deila