Vestri fagnaði 10 ára afmæli sínu þann 16. janúar sl. og var m.a. haldið upp á tímamótin með útgáfu sérstaks Vestralags. Einvalalið tónlistarmanna kom að gerð lagsins og má þar fyrst nefna Þormóð Eiríksson sem samdi lagið ásamt Ásgeiri Kristjáni Karlssyni og unnu þeir saman að hljóðblöndun, útsetningu og pródúseringu. Kristján Sturla Bjarnason lagði þeim lið með lúðra, trombone og horn. Flytjandi lagsins er Elvar Orri Palash Arnarsson sem einnig samdi lagatexta ásamt Ásgeiri Kristjáni. Gunnar Dagur hannaði kápu fyrir lagið sem er núna aðgengilegt á Spotify.
Útgáfa Vestralagsins hefði aldrei orðið að veruleika ef ekki hefðu komið til fyrirtæki og einstaklingar sem voru tilbúin að styrkja verkefnið: