Fréttir

13 réttir í hús

Getraunir | 05.05.2026

Stóri pottur skilaði 13 réttum um síðustu helgi.  Krissi að gera vel.

13 réttir skiluðu vinningi upp á kr. 853.000.  Seðilinn kostaði tæpar 60.000 þannig að hluthafar rúmlega 14 falda framlagið.  Vel gert.

Minnum á að allir eru velkomnir inn í stóra pott, styðja Vestra og eiga von á vinningi í leiðinni.  Senda póst á getraunir@vestri.is og ykkur verður bætt inn.  

Af getraunaleiknum er það að frétt að Getspakir eru búnir að sigla þessu heim, komnir með 10 stiga forystu nú þegar 2 vikur eru eftir af tímabilinu.  Stöðuna í leiknum má sjá hér.

 

Deila