Fréttir

Getraunastarfið loksins í gang

Getraunir | 30.10.2023

Sumarið var óvenju langt að þessu sinni en nú er getraunanefndin loksins tilbúin.

Verðum með einn leik að þessu sinni, sameinum haust og vorleikinn í einn stóran 26 vikna leik. 24 bestu vikurnar telja, má henda út tveimur vikum.

Stóri potturinn verður á sínum stað.

Team HG sigraði í vorleik 2023, þeirra annar sigur, Skúrverjar hafa sigrað oftast, alls þrisvar sinnum.

Tippleikur 2024 verður 11. tímabilið sem getraunaleikur Vestra er í gangi.  Yfirlit yfir sigurvegarí Getraunaleik Vestra frá upphafi má nálgast hér:

Stöðuna hverju sinni má síðan finna hér.

Tippnefndin reiknar með sömu liðum og verið hafa, reiknum einnig með sömu áksrifendum í stóra potti og verið hafa.  Menn beðnir að senda póst á getraunir@vestri.is vilji þeir breyta.  

Ný lið eru að sjálfsögðu velkomin sem og fleiri og stærri framlög í stóra pott.  Allt er þetta jú gert í þágu Íþróttafélagsins Vestra, félagsins okkar.

Nefndin verður á sínum stað í Skúrnum alla laugardaga að taka við röðum.

 

Nefndin

Deila