Fréttir

Team HG með 12 rétta - Auka við forystuna á toppnum

Getraunir | 26.01.2020

Gummi Gísli sýnir enn einn stórleikinn, skilar 12 réttum þegar næstu lið skila 10 réttum.  12 réttir skila rúmum 350.000 kr. í vinning, hrikalega vel gert hjá Gumma.  Höldum að Gummi eigi allar vikur hjá HG, félagar hans ekki náð mörgum réttum.

Önnur lið þurfa að fara að spýta í lófana og vanda sig, Skúrinn er nú 5 stigum á undan næstu liðum eftir aðeins 4 umferðir.  Fer að minna á efstu deild í Englandi.

Annars má sjá árangur keppenda og stöðuna í leiknum hér 

Stóri pottur náði  ekki nema 10 réttum sem skilaði um 5.000 kr. í vinning, spurning um að fá ráð hjá Gumma næst.

Venjulegur seðill næst, 7 leikir úr efstu deild og sex úr þeirri næstu, næsta seðil má finna hér.

Nefndin verður á sínum stað í skúrnum á laugardaginn frá 12 - 14 að taka við röðum.  Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna.  Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra.

Þessir leikir verða með annara í beinni útsendingu í Skúrnum:

12.30   Leicester  -  Chelsea

15.00   Liverpool  -  Southampton

17.30   Manchester United  - Wolves

Deila