Fréttir

Fjallahjólanámskeið fyrir börn, unglinga og ungmenni

Hjólreiðar | 13.05.2022

Hjólreiðadeild Vestra býður upp á fjallahjólanámskeið fyrir börn frá 8 ára aldri (2014) og upp í unglinga og ungmenni. Endanleg hópaskipting ræðst af þátttöku, en gert er ráð fyrir tveimur hópum. Námskeiðið fer fram á Ísafirði dagana 21.-22. maí.

Hópur 1: Kl. 9:00 - 11:30 (yngri hópur)

Hópur 2: Kl. 12:30 - 15:00 (eldri hópur)

Þjálfarar á námskeiðinu eru þau Gunnhildur I. Georgsdóttir og Helgi Berg Friðþjófsson, en bæði hafa þau menntað sig í fjallahjólakennslu fyrir börn og fullorðna.

Ef einhverjar spurningar vakna er velkomið að hafa samband í gegnum skilaboð á Facebook síðu Hrd. Vestra.

Skráning fer fram hér.

Verð:
5.000 kr. fyrir börn sem eru skráð í Hjólreiðadeild Vestra
7.500 kr. fyrir aðra

Á skráningarformi er hægt að haka við skráningu barns í hjólreiðadeildina.

Námskeiðið skiptist upp í tvo hluta, 2,5 tíma í senn. 

Dagur 1

Hjólið og hjólaferðir - öryggisatriði, búnaður, hvað þarf í hjólaferðir o.s.frv.

Grunnatriði og æfingar í öruggu umhverfi. Staðan á hjólinu, bremsutækni, jafnvægisæfingar o.s.frv. Hjólaferð þar sem þessi atriði eru æfð frekar.

Dagur 2

Upprifjun frá degi 1. Farið yfir fleiri grunnatriði sem eru æfð í öruggu umhverfi, m.a. gírun, beygjur, skimun o.fl. Lengri hjólaferð þar sem þessi grunnatriði eru æfð og rædd enn frekar, bæði frá degi 1 og 2. Upprifjun, ýmsir leikir fyrir grunnatriði endurteknir og slútt.

Nauðsynlegur búnaður:

  • Hjól: Fjallahjól með grófum dekkjum. Gott að huga að bremsum, dekkjum og gírum.
  • Hjálmur: Hjálmaskylda er á námskeiðinu.
  • Hanskar: Léttir og liprir hanskar eru æskilegir
  • Klæðnaður: Í samræmi við veður

 

Þjálfarar:

Gunnhildur I. Georgsdóttir, ÍSÍ, PMBIA level 1 og kids module.

Helgi Berg Friðþjófsson, UCI Level 1 og  2, PMBIA level 1 og kids, Lee Mccormack þjálfaramenntun og mtb fit

 

Deila