Fréttir

Jón Þór Hauksson tekur við Vestra!

Knattspyrna | 15.07.2021
Sammi og Jón Þór sáttir við undirskrift
Sammi og Jón Þór sáttir við undirskrift
1 af 3

Knattspyrnudeild Vestra kynnir ráðningu á nýjum þjálfara meistaraflokks karla.

Jón Þór Hauksson hefur skrifað undir samning þess efnis að stýra liðinu út leiktíðina. Jón Hálfdán Pétursson, yfirþjálfari yngri flokka, mun aðstoða Jón Þór.

Jón Þór var síðast þjálfari kvennalandsliðsins en þar áður starfaði hann hjá Stjörnunni og ÍA.

Knattspyrnudeild Vestra er gríðarlega ánægt með þessa ráðningu, en í Jóni erum við að fá gríðarlega öflugan og reynslumikin þjálfara.

Teymið hefur tekið strax til starfa og mun stýra leik okkar manna gegn Þrótti á laugardag, en sá leikur hefst klukkan 13:00 á Olísvellinum.

Áfram Vestri!

Deila