Fréttir

Tækninámskeið Vestra fyrir börn fædd 2016-2019

Knattspyrna | 24.06.2026

Um er að ræða tvö tækninámskeið fyrir öll börn fædd 2016-2019.


Námskeið 1: 29. júní - 02. júlí.
Námskeið 2: 02. - 09. júlí.

Verð kr. 10.000 per námskeið.

Skráning er í Abler

Dagskrá:
Mán - Fim kl. 09.00-12.00

Markmið námskeiðsins:
Þjálfa færni og sköpunargleði hjá leikmönnum.
Gera leikinn skemmtilegan í æfingum og í leik.
Þjálfa góðan íþróttaanda og virðingu innan sem utan vallar.
Bjóða upp á lærdómsríkt umhverfi sem mætir best þjálfunarmakmiðunum.

Yfirþjálfari er Heiðar Birnir.
Aðrir þjálfarar koma frá knattspyrnudeild Vestra.

Allar æfingar fara fram á æfingasvæði knattspyrnudeildar Vestra á Torfnesi.

ÁFRAM VESTRI ⚽️
Deila